Óli Árni Vilhjálmsson (Burstafelli)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 22. júní 2024 kl. 12:01 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 22. júní 2024 kl. 12:01 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Ný síða: '''Óli Árni Vilhjálmsson''', frá Burstafelli, sjúkraliði fæddist þar 18. október 1941 og lést 24. desember 2021.<br> Foreldrar hans voru Vilhjálmur Árnason frá Burstafelli, verslunarmaður, framkvæmdastjóri, f. 19. febrúar 1921, d. 19. febrúar 1993, og kona hans María Gísladóttir húsfreyja, f. 6. mars 1923 í Neskaupstað, d. 11. janúar 2016. Börn Maríu og Vilhjálms:<br> 1...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Óli Árni Vilhjálmsson, frá Burstafelli, sjúkraliði fæddist þar 18. október 1941 og lést 24. desember 2021.
Foreldrar hans voru Vilhjálmur Árnason frá Burstafelli, verslunarmaður, framkvæmdastjóri, f. 19. febrúar 1921, d. 19. febrúar 1993, og kona hans María Gísladóttir húsfreyja, f. 6. mars 1923 í Neskaupstað, d. 11. janúar 2016.

Börn Maríu og Vilhjálms:
1. Óli Árni Vilhjálmsson, f. 18. október 1941, d. 24. desember 2021. Fyrrum kona hans Jenny Joensen. Kona hans Ólafía Skarphéðinsdóttir.
2. Þór Ísfeld Vilhjálmsson, f. 30. nóvember 1945. Kona hans Sólveig Adolfsdóttir.
3. Sæmundur Vilhjálmsson, f. 7. desember 1948. Fyrrum kona hans Elín Kristín Þorsteinsdóttir. Kona hans Fríða Jóna Ágústsdóttir.
4. Sigurbjörg Vilhjálmsdóttir, f. 2. nóvember 1956. Maður hennar Muggur Pálsson.
5. Vilhjálmur Vilhjálmsson, f. 5. mars 1963. Fyrrum kona hans Andrea Inga Sigurðardóttir. Kona hans Ragnhildur Þorbjörg Svansdóttir.

Óli Árni var með foreldrum sínum í æsku.
Hann varð gagnfræðingur í Gagnfræðaskólanum í Eyjum 1957, lauk sjúkraliðanámi.
Óli Árni var sjúkraliði í Noregi og á Íslandi.
Þau Jenny giftu sig, eignuðust þrjú börn. Þau bjuggu í Noregi og skildu.
Þau Ólafía giftu sig, eignuðust ekki börn saman. Þau bjuggu á Selfossi.

I. Kona Óla Árna, skildu, er Jenny Joensen, frá Færeyjum, f. 3. nóvember 1943.
Börn þeirra:
1. Vilhjálmur Árnason, sálfræðingur í Noregi, f. 22. janúar 1969.
2. Hanna María Árnadóttir, kennari í Noregi, f. 3. janúar 1971.
3. Elías Árnason, bóndi, ræktar hesta, f. 20. janúar 1973.

II. Kona Óla Árna er Ólafía Skarphéðinsdóttir, f. 14. júlí 1947. Foreldrar hennar Skarphéðinn Kristjón Óskarsson, f. 11. september 1922, d. 18. desember 1998, og Unnur Guðjónsdóttir, f. 27. ágúst 1922, d. 26. ágúst 2006.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.