Ingólfur Arnarsson (forstjóri)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 5. júní 2024 kl. 17:40 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 5. júní 2024 kl. 17:40 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Ný síða: '''Ingólfur Arnar Arnarsson''' forstjóri fæddist 5. janúar 1967 í Eyjum.<br> Foreldrar hans Arnar Valur Ingólfsson, járnsmíðameistari, verkstjóri, f. 14. janúar 1942 og kona hans Margrét Steinunn Jónsdóttir, f. 31. október 1943. Ingólfur Arnar var með foreldrum sínum í æsku, við Hásteinsveg 48 1972.<br> Hann var við nám í Framhaldsskólanum í Eyjum.<br> Ingólfur hefur unnið í fyrirt...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Ingólfur Arnar Arnarsson forstjóri fæddist 5. janúar 1967 í Eyjum.
Foreldrar hans Arnar Valur Ingólfsson, járnsmíðameistari, verkstjóri, f. 14. janúar 1942 og kona hans Margrét Steinunn Jónsdóttir, f. 31. október 1943.

Ingólfur Arnar var með foreldrum sínum í æsku, við Hásteinsveg 48 1972.
Hann var við nám í Framhaldsskólanum í Eyjum.
Ingólfur hefur unnið í fyrirtæki Kristmanns tengdsföður síns, Karl Kristmanns umboðs- og heildverslun, í 42 ár, þar af forstjóri í 8 ár.
Þau Betsý giftu sig 1989, eignuðust fjögur börn. Þau búa við Bessahraun.

I. Kona Ingólfs, (16. september 1989), er Betsý Kristmannsdóttir, húsfreyja, ritari, f. 22. apríl 1967.
Börn þeirra:
1. Arnar Ingólfsson, bifreiðasmiður, verslunarmaður, f. 26. desember 1988. Kona hans Elín Árnadóttir Gunnarssonar.
2. Heiða Ingólfsdóttir, sálfræðingur, f. 7. september 1991. Sambúðarmaður Grétar Stefánsson Óskars Jónassonar.
3. Klara Ingólfsdóttir, geislafræðingur, f. 19. júlí 1994. Sambúðarmaður Þorsteinn Atli Kristjánsson.
4. Kristín Ingólfsdóttir, snyrtifræðingur, f. 29. október 1998. Sambúðarmaður Iliyan Damianov af búlgörskum ættum.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.