Arnar Valur Ingólfsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Arnar Valur Ingólfsson, járnsmíðameistari, verkstjóri fæddist 14. janúar 1942 í Björk við Vestmannabraut 47.
Foreldrar hans voru Ingólfur Guðmundsson, úrsmiður, f. 27. júlí 1909, d. 28. febrúar 1968, og kona hans Kristjana Sigurðardóttir, húsfreyja, f. 5. september 1915, d. 11. apríl 2016.

Arnar lærði járnsmíði, öðlaðist meistararéttindi og vann við iðn sína, varð verkstjóri.
Þau Margrét Steinunn giftu sig, eignuðust fjögur börn. Þau bjuggu við Hásteinsveg 48 1964 og 1972, síðan við Hrauntún 16

I. Kona Arnars Vals er Margrét Steinunn Jónsdóttir, húsfreyja, f. 31. október 1943.
Börn þeirra:
1. Hjördís Inga Arnarsdóttir, f. 12. september 1961.
2. Jón Bragi Arnarsson, f. 20. desember 1962.
3. Sigurdís Harpa Arnarsdóttir, f. 3. maí 1964.
4. Ingólfur Arnar Arnarsson, f. 5. janúar 1967.



Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.