Kristinn Pálsson (á heflinum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 26. desember 2006 kl. 22:53 eftir Frosti (spjall | framlög) Útgáfa frá 26. desember 2006 kl. 22:53 eftir Frosti (spjall | framlög) (setti inn mynd)
Fara í flakk Fara í leit
Kristinn Viðar Pálsson

Kristinn Viðar Pálsson er fæddur 4. nóvember 1938. Eyjamenn þekkja ef til vill betur til hans undir nafninu Kiddi á heflinum en það er hann kallaður vegna þess að aðalstarf hans frá upphafi var malarnám og grjótmulningur. Malarnám skilur eftir sig sár en þau hefur Kiddi viljað græða á einhvern hátt og hans aðferð við það er að útbúa grjótskúlptúra og efnið sækir hann í nágrennið.

Árið 1952 byrjaði Kiddi í malarnáminu inn í Herjólfsdal. Fyrsta verkefnið var að mala grjót í hús Útvegsbankans við Kirkjuveg, sem var verið að byggja í Eyjum. Auk þess að mala grjót var hann á veghefli bæjarins og við hann er Kiddi kenndur.

Á yngri árum var Kiddi í myndlistarskóla hjá Páli Steingrímssyni. Árið 1995 byrjaði Kiddi að reisa grjótskúlptúra. Þekktastur þeirra er líklega hin 4 metra háa Auróra, sem horfir til hafs á brúninni vestan við Viðlagafjöru á Nýja hrauninu.


Heimildir

  • Ómar Garðarsson, Morgunblaðið 18. maí 2006.