Þorsteinn Ingi Sigfússon

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 19. desember 2006 kl. 21:31 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 19. desember 2006 kl. 21:31 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Þorsteinn Ingi Sigfússon prófessor fæddist 4. júní 1954 í Eyjum. Foreldrar hans eru Sigfús Jörundur Árnason Johnsen, f. 1930, d. 2006, og k.h. Kristín Sigríður Þorsteinsdóttir, f. 1930.

Maki (16. ágúst 1975): Bergþóra Karen Ketilsdóttir kerfisfræðingur í Rvk, yfirmaður upplýsingatæknideildar Kreditkorta h.f (MasterCard) á Íslandi, f. 20. júní 1954.
Foreldrar: Ketill Jónsson skipstjóri, bifreiðastjóri og verzlunarmaður, f. 1921, d. 2001 og k.h. Bergþóra Heiðrún Guðlaugsdóttir húsmóðir, f. 1922.
Börn: Davíð Þór læknanemi, f. 16. apríl 1980; Dagrún Inga, f. 10. okt. 1989; Þorkell Viktor, f. 23. júlí 1992.

Nám og störf

Þorsteinn Ingi varð stúdent 1973. Hann nam eðlisfræði og stærðfræði við Kaupmannahafnarháskóla 1973-78. Doktorsprófi í eðlisfræði lauk hann frá háskólanum í Cambridge á Englandi 1982.
Hann var sérfræðingur við Raunvísindastofnun Háskóla Íslands, síðar í prófessorsstöðu í eðlisfræði, sem Íslenzka járnblendifélagið kostaði við Háskóla Íslands 1989-1994, en prófessor Háskólans í eðlisfræði frá 1994.

Þorsteinn Ingi hefur beitt sér fyrir tengingu Háskólans við atvinnulífið og stofnað mörg sprotafyrirtæki. Eitt þessara fyrirtækja er Íslenzk NýOrka ehf., sem hefur það að markmiði að stuðla að vetnisvæðingu á Íslandi. Þegar alþjóða vetnissamtökin (IPHE) voru stofnuð 2003, var Þorsteinn Ingi kjörinn formaður framkvæmdanefndar þeirra. Hann var sæmdur riddarakrossi íslenzku fálkaorðunnar 2004.



Heimildir