Helga Sigurgeirsdóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 13. desember 2006 kl. 12:54 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 13. desember 2006 kl. 12:54 eftir Viglundur (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Helga Sigurgeirsdóttir húsmóðir og sjúkrahússtarfsmaður fæddist 11. nóvember 1936 í Reykjavík.
Foreldrar hennar voru Sigurgeir Guðjónsson trésmiður í Reykjavík, ættaður úr Flóa, en alinn upp í Hvammi í Landsveit, f. 9. ágúst 1906, d. 9. september 1985 og kona hans Sigurbjörg húsfreyja, f. 6. október 1907, d. 11. apríl 1998, Ólafs bónda í Akurey í V-Landeyjum, Ólafssonar.

Helga ólst upp í Reykjavík, flutti til Eyja við hjónaband þeirra Jóns Bergs. Í Eyjum rak hún heimilið, en eftir flutning þeirra til Hafnarfjarðar starfaði hún lengi á Jósefsspítala þar. Hún býr nú í Hafnarfirði.

Maki: Jón Berg Halldórsson skipstjóri og verkstjóri.

Börn þeirra Jón Bergs eru:

  1. Halldór Berg iðnrekandi, f. 5. febrúar 1959 í Eyjum.
  2. Sigurbjörg bókari, f. 1. marz 1961 í Eyjum.
  3. Ólafur Þór pípulagningameistari, f. 6. nóvember 1962 í Eyjum.

Fyrir hjónaband átti Helga barn með Meyvant Meyvantssyni. Það er

  1. Guðmundur Meyvantsson togarasjómaður í Hafnarfirði, f. 23. október 1955 í Reykjavík.

Heimildir:

  • Helga Sigurgeirsdóttir.