Ómar Jónasson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 2. október 2023 kl. 20:55 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 2. október 2023 kl. 20:55 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Ný síða: thumb|200px|''Ómar Jónasson. '''Ómar Jónasson''' húsasmiður fæddist 19. júní 1953 á Hásteinsvegi 8 í Eyjum og lést 16. maí 2014.<br> Foreldrar hans voru Jónas Guðmundsson húsasmíðameistari, f. 21. desember 1928, d. 14. mars 1998, og kona hans Ursula Marie Helene Quade Guðmundsson frá Stettin í Þýskalandi, húsfreyja, f. 17. janúar 1...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit
Ómar Jónasson.

Ómar Jónasson húsasmiður fæddist 19. júní 1953 á Hásteinsvegi 8 í Eyjum og lést 16. maí 2014.
Foreldrar hans voru Jónas Guðmundsson húsasmíðameistari, f. 21. desember 1928, d. 14. mars 1998, og kona hans Ursula Marie Helene Quade Guðmundsson frá Stettin í Þýskalandi, húsfreyja, f. 17. janúar 1931.

Ómar var með foreldrum sínum.
Hann lærði húsasmíði hjá föður sínum, útskrifaðist í Iðnskólanum í Hafnarfirði.
Ómar var um skeið á fraktskipum. Hann vann með föður sínum og ýmsum öðrum, hjá Jóni Hannessyni og hjá Sökkli. Siðustu ár starfaði hann hjá fyrirtækinu J.E. Skjanna.
Þau Kristín giftu sig 1977, eignuðust þrjú börn.
Þau fluttu frá Eyjum í Gosinu 1973, settust að í Kópavogi.
Ómar lést 2014.

I. Kona Ómars, (21. janúar 1977), er Kristín Björgvinsdóttir húsfreyja, f. 4. mars 1954.
Börn þeirra:
1. Guðmar Ómarsson, f. 25. janúar 1972. Barnsmóðir hans María Elín Sigurbjörnsdóttir. Sambúðarkona hans Andrea Anna Guðjónsdóttir.
2. Karen Ómarsdóttir, f. 1. nóvember 1973. Barnsfaðir hennar Davíð Már Sigurðsson.
3. Ómar Ómarsson, f. 5. mars 1976.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.