Kristín Benedikta Jóhannesdóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 11. ágúst 2023 kl. 15:31 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 11. ágúst 2023 kl. 15:31 eftir Viglundur (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Kristín Benedikta Jóhannesdóttir húsfreyja fæddist 7. mars 1892 í Reykjavík og lést 24. júlí 1975.
Foreldrar hennar voru Jóhannes Benediktsson frá Oddakoti á Álftanesi, f. 17. september 1970, d. 17. ágúst 1921, og Málfríður Ólafsdóttir, f. 29. apríl 1864, d. 25. júlí 1918

Þau Sveinn giftu sig 1909, eignuðust tvö börn, bjuggu í Reykjavík. Þau skildu.
Þau Victor giftu sig 1919, eignuðust tvö börn. Þau bjuggu á Eiðinu og á Sæbóli við Strandveg 50. Þau fluttu til Reykjavíkur um 1929, bjuggu við Laugaveg 101.

I. Maður Kristínar, (1909, skildu), var Sveinn Jónsson sjómaður, f. 13. júní 1889 í Norðurkoti í Útskálasókn, Gull., d. 12. mars 1966. Foreldrar hans voru Jón Þorsteinsson sjómaður, síðar í Reykjavík, f. 10. apríl 1858, d. 1918, og Halldóra Jónsdóttir húsfreyja, f. 19. nóvember 1857, d. 31. maí 1940.
Börn þeirra:
1. Svanhvít Sylvía Sveinsdóttir, f. 30. júní 1910, d. 28. maí 1946.
2. Guðni Sveinsson, f. 19. október 1912, d. 9. febrúar 1987.

II. Maður Kristínar, (18. september 1919), var Jóhann Victor Jacobsen sjómaður, skipstjóri, útgerðarmaður bræðslumaður í Eyjum, síðar bræðslustjóri í Reykjavík og á Ingólfsfirði, f. 15. júní 1878, d. 2. nóvember 1956.
Börn þeirra:
1. Victor Kristján Jacobsen skipstjóri á hafnarbátnum í Reykjavík, f. 20. júlí 1918 á Eiðinu, d. 12. desember 1991. Barnsmóðir hans Ingibjörg Jóhannsdóttir. Kona hans Hildur Ísfold Steingrímsdóttir.
2. Leander Jacobsen bifreiðastjóri í Reykjavík, f. 4. ágúst 1921 á cSæbóli, d. 14. ágúst 1971. Fyrrum kona hans Fríða Jóhannesdóttir. Fyrrum kona hans Elín Guðmundsdóttir. Barnsmóðir hans Natalin Höy.
3. Jóel Blomquist Jacobson íþróttakennari, ökukennari, húsvörður, f. 15. apríl 1924 á Sæbóli, d. 26. maí 1991. Kona hans Málfríður Bergljót Jónsdóttir.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.
  • Manntöl.
  • Morgunblaðið 19. desember 1991. Minning Victors K. Jacobsen.
  • Prestþjónustubækur.
  • Steingrímur.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.