Páll Lúthersson (klæðskerameistari)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 24. júlí 2023 kl. 13:49 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 24. júlí 2023 kl. 13:49 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Verndaði „Páll Lúthersson (klæðskerameistari)“ ([Breyta=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn) [Færa=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn)))
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Páll Lúthersson klæðskerameistari, trúboði fæddist 20. október 1926 á Eskifirði og lést 25. maí 1981 í S.-Afríku.
Foreldrar hans voru Marteinn Lúther Guðnason múrari, kaupmaður, oddviti, f. 31. október 1895, d. 15. mars 1969, og kona hans Arnbjörg Pálsdóttir húsfreyja, f. 3. ágúst 1905, d. 29. desember 1932.

Páll var með foreldrum sínum, en móðir hans lést, er hann var sex ára.
Hann lærði klæðskeraiðn á Akureyri, var síðar í biblíuskóla í Stokkhólmi.
Hann vann á Akureyri um skeið, en flutti til Eyja og starfaði þar að iðn sinni, reisti húsið við Heiðarveg 5, bjó við Fífilgötu 5, við Vestmannabraut 76, við Heiðarveg 5, en síðan í Kópavogi.
Páll hafði forstöðu fyrir blaða- og bókaútgáfu Hvítasunnumanna. Hann gerðist trúboði um 1975, er hann flutti til Afríku og starfaði þar.
Þau Aðalheiður Stefanía giftu sig, eignuðust sjö börn.
Páll lést í S.-Afríku eftir að ekið var á hann.

I. Kona hans er Aðalbjörg Stefanía Ingólfsdóttir frá Skjaldþingsstöðum í Vopnafirði, húsfreyja, f. 11. nóvember 1924.
Börn þeirra:
1. Ingimar Pálsson tónlistarmaður, kennari, f. 14. mars 1945 á Akureyri.
2. Elín Pálsdóttir húsfreyja, f. 11. febrúar 1949.
3. Arnbjörg Pálsdóttir húsfreyja, f. 17. mars 1951. Maður hennar, skildu, Helgi Jósefsson Vápni, látinn.
4. Lúther Pálsson rafvirki, leigubílstjóri í Kópavogi, f. 2. júní 1953 á Fífilgötu 5. Barnsmæður hans Ragna Benedikta Gísladóttir, Hjördís Bech Ásgeirsdóttir. Kona hans Áslaug Björg Hrólfsdóttir.
5. Pála Björg Pálsdóttir húsfreyja, verkakona, f. 7. október 1957 í Eyjum. Maður hennar Kristján Egilsson.
6. Páll Elfar Pálsson, f. 27. nóvember 1962.
7. Sesselja Kristín Pálsdóttir, f. 28. júlí 1965.



Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.
  • Íslendingaþættir Tímans 1. júlí 1981. Minning.
  • Morgunblaðið 10. júní 1981. Minning.
  • Prestþjónustubækur.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.