Þór Sigfússon

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 10. nóvember 2006 kl. 11:15 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 10. nóvember 2006 kl. 11:15 eftir Viglundur (spjall | framlög) (stytti framætt maka.)
Fara í flakk Fara í leit

Þór Sigfússon hagfræðingur, forstjóri fæddist 2. nóv. 1964 í Eyjum.
Foreldrar: Sigfús Jörundur Árnason Johnsen, f. 1930 og k.h. Kristín Sigríður Þorsteinsdóttir, f. 1930.
Þór varð stúdent 1985, lauk BA-prófi í hagfræði við University of N-Carolina í Bandaríkjunum 1990 og masters-prófi frá sama skóla 1991.
Þór var ráðgjafi fjármálaráðherra 1993-98, aðstoðarframkvæmdastjóri Norræna fjárfestingabankans 1998, framkvæmdastjóri Verzlunarráðs (síðar Viðskiptaráðs) til 2005. Forstjóri Sjóvár frá 1. des. 2005. Hann hefur staðið að bókaútgáfu. Gaf hann m.a. út ljósprentaða gerð Sögu Vestmannaeyja eftir Sigfús M. Johnsen með viðaukum 1989. Hann hefur einnig skrifað greinar og bækur um hagfræðileg efni og stjórnmál og ritstýrt slíkum. Var hann formaður Heimdallar og framkvæmdastjóri Sambands ungra Sjálfstæðismanna 1986-88.
Maki : Halldóra Vífilsdóttir arkitekt, f. 6. júlí 1968.
Foreldrar: Vífill Oddsson verkfræðingur, f. 1937 og k.h. Katrín Gústafsdóttir húsmóðir og forstöðumaður ræstinga á Ríkisspítulum, f. 1938.
Börn: Oddur Ísar, f. 15. júlí 2000; Kristína Katrín, f. 24. jan. 2004.

Heimildir:

  • Pers.