Sigurvin Þorsteinsson (Vesturhúsum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 6. júní 2023 kl. 18:39 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 6. júní 2023 kl. 18:39 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Ný síða: '''Sigurvin Þorsteinsson''' frá Vesturhúsum-eystri fæddist 5. janúar 1950 og lést 10. júlí 1980. Foreldrar hans voru Þorsteinn Ólafsson verkamaður, f. 24. júní 1896 í Dufþaksholti í Hvolhreppi, d. 13. apríl 1967, og kona hans Gíslný Jóhannsdóttir húsfreyja, f. 3. júlí 1911 í Efri-Vatnahjáleigu í A.-Landeyjum, d. 14. janúar 1993. Börn Gíslnýjar og Þorsteins:<br> 1. Jóhanna Þorstein...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Sigurvin Þorsteinsson frá Vesturhúsum-eystri fæddist 5. janúar 1950 og lést 10. júlí 1980. Foreldrar hans voru Þorsteinn Ólafsson verkamaður, f. 24. júní 1896 í Dufþaksholti í Hvolhreppi, d. 13. apríl 1967, og kona hans Gíslný Jóhannsdóttir húsfreyja, f. 3. júlí 1911 í Efri-Vatnahjáleigu í A.-Landeyjum, d. 14. janúar 1993.

Börn Gíslnýjar og Þorsteins:
1. Jóhanna húsfreyja að Hilmisgötu 1, síðar iðnverkakona í Innri Njarðvík, f. 25. marz 1930, d. 21. nóvember 2000, gift Jóhannesi P. Sigmarssyni múrara og vélstjóra.
2. Tryggvi kennari í Arendal í Noregi, f. 13. maí 1931, kvæntur Inger Thorsteinsson, fædd Thorvaldsen,
3. Ólafía verkakona í Reykjavík, f. 9. nóvember 1933, gift Guðna Þ. Ágústssyni rafeindavirkja. Hún ólst upp hjá föðurbróður sínum Magnúsi Ólafssyni í Hvolhreppi í Rangárvallasýslu,
4. Trausti vélvirki í Kópavogi, f. 14. febr. 1935, kvæntur Önnu Finnsdóttur skrifstofumanni,
5. Halla skólastarfsmaður á Akranesi, f. 7. maí 1936, gift Þórði Þórðarsyni netagerðarmanni,
6. Lilja iðnverkakona í Reykjavík, f. 28. sept. 1937, gift Inga S. Sigmarssyni verzlunarmanni, en hann er bróðir Jóhannesar manns Jóhönnu systur Lilju,
7. Reynir húsgagnabólstrari í Kópavogi, f. 8. nóvember 1938, kvæntur Grétu Jansen skrifstofumanni,
8. Sólveig verzlunarmaður í Reykjavík, f. 26. febrúar 1940, gift Inga B. Guðjónssyni húsasmið,
9. Birgir húsgagnasmiður í Reykjavík, f. 9. marz 1942, kvæntur Sigrúnu Halldórsdóttur kennara,
10. Guðrún húsfreyja í Seattle í Bandaríkjunum, f. 17. maí 1943, fyrr gift Magnúsi Sigurðssyni verkamanni, síðar Richard L. Campbell tölvufræðingi,
11. Jónína iðnverkakona í Kópavegi, f. 23. september 1944, gift Guðjóni Þorbergssyni iðnverkamanni,
12. Smári iðnverkamaður í Reykjavík, f. 18. marz 1946, ókvæntur,
13. Svanur rafeindavirki í Kópavogi, f. 2. október 1947, kvæntur Svanhildi Svansdóttur læknaritara,
14. Sigurvin sjómaður í Eyjum, f. 5. janúar 1950, d. 10. júlí 1980, fórst með v.b. Skuld.
15. Vilborg bóndi á Sléttabóli á Skeiðum, f. 22. nóvember 1951, gift Jóhannesi Eggertssyni bónda,
16. Sigurbjörg húsfreyja á Fáskrúðsfirði, f. 6. febrúar 1953, gift Jóhannesi Ragnarssyni verkstjóra.

Sigurvin var með foreldrum sínum, en faðir hans lést, er Sigurvin var 17 ára.
Hann var sjómaður, var matsveinn á Skuld VE 263 og fórst með henni 10. júlí 1980.
Hann var ókvæntur, bjó við Hásteinsveg 33.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.