Jónína Steinunn Sigurðardóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 15. október 2006 kl. 13:00 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 15. október 2006 kl. 13:00 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Jónína Steinunn Sigurðardóttir húsfreyja á Háeyri, fæddist 15. nóvember 1890 og lést 31. mars 1970. Eiginmaður hennar var Guðmundur Jónsson, f. 1888. Foreldrar Jónínu Steinunnar voru hjónin Þóranna Ingimundardóttir ljósmóðir og Sigurður Sveinsson í Nýborg.
Börn þeirra Guðmundar voru: Þórarinn, f. 4. júlí 1910, d. 8. nóv. 1970; Árni Guðmundsson („Árni úr Eyjum“), f. 6. marz 1913, d. 11. marz 1961; Sigurást (Ásta) Þóranna Guðmundsdóttir Tegeder, f. 12. nóv. 1915, d. 18. maí 1991; Hermann, f. 11. júní 1921, drukknaði af v.b. Sísí 17. júlí 1941; Ágúst Ingi, f. 20. okt. 1922, d. 2. okt. 1976; Sigurður, f. 17. maí 1931.

Heimildir:

  • Þorsteinn Þ. Víglundsson: Nýborgarheimilið, Blik 1960.
  • Herdís Tegeder, pers.
  • Páll Oddgeirsson: Minningarrit í marz 1952, bls. 52.
  • Kennaratal.
  • Garður.is.