Hjörleifur Sigurjónsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 13. október 2006 kl. 10:54 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 13. október 2006 kl. 10:54 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Hjörleifur fæddist 25. okt.1872, lézt 5. júní 1954. Foreldrar voru Sigurjón bóndi í Strandhöfn í Vopnafirði og Tjörn og Völlum í Svarfaðardal, en síðast búsettur á Húsavík, f. f. 24. sept. 1840 í Haga í Reykjadal í Suður-Þingeyjarsýslu, d. 16. maí 1926 á Húsavík, Jónsson bónda í Haga Árnasonar og konu Jóns, Helgu Jónsdóttur bónda á Hólmavaði Magnússonar. Kona Sigurjóns og móðir Hjörleifs var Þórdís húsmóðir, f. 19. nóv. 1846 á Ytri-Galtarstöðum í Hróarstungu í S-Múlasýslu, d. 25. des. 1909 á Húsavík, Hjörleifs prests á Völlum í Svarfaðardal Guttormssonar og konu hans Guðlaugar Björnsdóttur prest í Kirkjubæ í Hróarstungu Vigfússonar.
Hjörleifur stundaði sjómennsku og útgerð á Húsavík og í Eyjum eftir að hann fluttist þangað 1924. Var hann um skeið í félagi með Helga Benediktssyni. Á efri árum gerðist hann húsvörður við Barnaskólann, en flutti til dóttur sinnar að Brekku við Vatnsenda í Kópavogi 1948.
Maki (6. ágúst 1921): Stefanía Guðrún Hannesdóttir ljósmóðir. Þau bjuggu í Engidal.
Barn (kjörbarn): Björg Sigurveig, f. 24. júní 1920, búsett að Brekku við Vatnsenda í Kópavogi. Maki: Hilmar Árnason, d. 1991.

Heimildir:

  • Ljósmæður á Íslandi.
  • Sigfús M. Johnsen: Saga Vestmannaeyja.
  • Svarfdælir.
  • Íslenzkar æviskrár.
  • Pers.