Valdimar Bjarnason (skipstjóri)
Valdimar Bjarnason, Staðarhóli, var fæddur að Kársdalstungu í Vatnsdal 17. mars 1894. Valdimar fór til Vestmannaeyja árið 1914 og byrjaði sjómennsku á Óskari hjá Gísla Magnússyni en síðar á Má hjá Bernódusi Sigurðssyni í Stakkagerði. Valdimar hóf formennsku árið 1919 á Braga og var fljótt heppinn fiskimaður. Valdimar lést 17 febrúar 1970 75 ára að aldri.
Valdimar var aflakóngur Vestmannaeyja 1925 og 1927.
Heimildir
- Sjómannablaðið Víkingur. Farmanna- og Fiskimannasamband Íslands.