Ögmundína Helga Ögmundsdóttir
Ögmundína Helga Ögmundsdóttir frá Tjarnarkoti í Njarðvíkum, Gull., húsfreyja fæddist 31. júlí 1894 og lést 31. janúar 1970.
Foreldrar hennar voru Ögmundur Sigurðsson bóndi í Tjarnarkoti, f. 3. maí 1959, d. 20. mars 1894, og kona hans Helga Arinbjarnardóttir húsfreyja, f. 20. apríl 1863, d. 20. ágúst 1924.
Ögmundína fæddist eftir lát föður síns. Hún var fósturbarn hjá Björgu móðursystur sinni í Þorsteinshúsi í Útskálasókn 1901, vinnuhjú þar 1910.
Hún flutti til Eyja 1912.
Þau Eyjólfur giftu sig 1916, eignuðust eitt barn. Þau bjuggu í Görðum við Vestmannabraut 32 1920, fluttu til lands 1923, bjuggu á Spítalastíg 10 í Reykjavík 1930.
Eyjólfur lést 1957 og Ögmundína Helga 1970.
Barn þeirra:
1. Ragnhildur Eyjólfsdóttir húsfreyja, f. 13. október 1917, d. 3. maí 1984. Maður hennar Ármann Friðriksson.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Íslendingabók.
- Manntöl.
- Prestþjónustubækur.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.