Þórhallur Þorgeirsson (Ingólfshvoli)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 12. desember 2022 kl. 14:16 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 12. desember 2022 kl. 14:16 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Þórhallur Þorgeirsson frá Stöðlakoti í Hvolhreppi, Rang., verkamaður, trésmiður fæddist 26. janúar 1901 og lést 25. júní 1982.
Foreldrar hans voru Þorgeir Guðnason bóndi, f. 15. október 1866, d. 22. október 1950, og kona hans Halla Björnsdóttir húsfreyja, f. 14. apríl 1865, d. 31. desember 1960.

Þórhallur var með foreldrum sínum í Stöðlakoti 1910 og 1920.
Þau Svava giftu sig 1931, eignuðust tvö börn. Þau fluttu til Eyja, bjuggu á Ingólfshvoli við Landagötu 3a, síðar á Hásteinsvegi 13, fluttu til Selfoss 1945.
Þórhallur lést 1982 og Guðbjörg Svava 2000.

I. Kona Þórhalls, (16. maí 1931), var Guðbjörg Svava Björnsdóttir frá Rauðnefsstöðum, Rang., f. 22. febrúar 1911, d. 28. febrúar 2000.
Börn þeirra:
1. Hörður Þórhallsson, trésmíðameistari í Reykjavík, f. 19. mars 1932 á Ingólfshvoli, d. 12. ágúst 2008. Kona hans Halldóra Katrín Guðjónsdóttir.
2. Erla Þórhallsdóttir húsfreyja á Selfossi, f. 8. nóvember 1933 á Ingólfshvoli. Maður hennar Ástráður Ólafsson.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.
  • Manntöl.
  • Morgunblaðið 4. mars 2000. Minning Svövu.
  • Prestþjónustubækur.
  • Rangvellingabók. Valgeir Sigurðsson. Rangárvallahreppur, Hellu 1982.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.