Guðmundur Högnason (Vatnsdal)
Sjá aðgreiningarsíðuna fyrir aðra sem hafa borið nafnið „Guðmundur Högnason“
![](/images/thumb/d/d6/Gu%C3%B0mundur_H%C3%B6gnason.jpg/250px-Gu%C3%B0mundur_H%C3%B6gnason.jpg)
Guðmundur Högnason fæddist 10. maí 1908 og lést 18. apríl 1982. Foreldrar hans voru Högni Sigurðsson og Sigríður Brynjólfsdóttir. Guðmundur bjó ásamt fjölskyldu í húsinu Vatnsdal og var jafnan kenndur við það. Systkini Guðmunds voru Sigurður, Ágústa Þorgerður, Hildur Ísfold, Haukur, Elín Ester og Hilmir. Guðmundur kom í miðið, milli Hildar og Hauks.
Guðmundur var bílstjóri og átti forláta Dodge-pallbíl sem hann notaði mikið við allskonar útréttingar um Heimaey.
Guðmundur var síðasti ábúandi á Vatnsdal en húsið fór undir hraun í gosinu 1973. Þar bjó hann ásamt Imbu, ekkju bróður síns Sigurðar.