Magnús Jónsson (sýslumaður)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 8. september 2022 kl. 13:19 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 8. september 2022 kl. 13:19 eftir Viglundur (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Sjá aðgreiningarsíðuna fyrir aðra sem hafa borið nafnið „Magnús Jónsson


Magnús sýslumaður

Magnús Jónsson var sýslumaður Vestmannaeyja frá 1896 til ársins 1908. Hann var fæddur þann 27. desember 1865 og lést þann 27. desember 1947. Foreldrar hans voru Jón Halldórsson, hreppstjóri í Nauteyrarhreppi og kona hans Guðrún Þórðardóttir.

Magnús varð stúdent í Reykjavík árið 1887 og lauk lögfræðiprófi frá Háskólanum í Kaupmannahöfn árið 1894. Hann var settur sýslumaður í Vestmannaeyjum 28. apríl 1896 og skipaður sýslumaður þar 14. ágúst sama ár.

Magnús var þríkvæntur. Fyrsta kona hans var Kirstín Sylvía Lárusdóttir Sveinbjörnsson. Önnur kona hans Jóhanna Andrea Oddgeirsdóttir og þriðja kona hans var Guðrún Sigríður en þær tvær eru systur. Átti Magnús samtals níu börn með konum sínum.

Magnús var einn af fimm mönnum sem komu Ísfélaginu á laggirnar.

Magnús bjó á Ljósvallagötu 8 í Reykjavík er hann lést.


Heimildir

  • Guðlaugur Gíslason: Eyjar gegnum aldirnar. Frásagnir af mannlífi og atburðum í Vestmannaeyjum frá gamalli tíð og nýrri. Reykjavík, 1982.