Sveinn Hjörleifsson (Skálholti)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 28. ágúst 2006 kl. 16:10 eftir Sigurgeir (spjall | framlög) Útgáfa frá 28. ágúst 2006 kl. 16:10 eftir Sigurgeir (spjall | framlög) (Leiðrétti og bætti við texta og flokki)
Fara í flakk Fara í leit

Sveinn Hjörleifsson fæddist 1. ágúst 1927 og lést 4. janúar 2004. Foreldrar hans voru Hjörleifur Sveinsson og Þóra Arnheiður Þorbjarnardóttir í Skálholti. Hann bjó lengst af að Höfðavegi 2 en var ávallt kenndur við æskuheimili sitt, Skálholt sem og bát sinn Kristbjörgu VE.

Sveinn var skipstjóri og útgerðarmaður.

Óskar Kárason samdi formannavísu um hann:

Svein Hjörleifs glöggt ég greini,
graminn ungan og framan.
Kristbjörgu verinn vistar
víða á sjónum stríða.
Orku með öldum storkar,
uggling þá bana bruggar.
Klettana klifar nettur
kappinn lítt hjarta-slappi.

Heimildir

  • Óskar Kárason. Formannavísur II. Vestmannaeyjum, 1956.