Langholt
Húsið Langholt stendur við Vestmannabraut 48a. Einar Pálsson, vélamaður, reisti húsið árið 1911.
Þarna hafa ýmsir kunnir aðilar búið í gegnum tíðina. Má þar nefna Guðjón Scheving og dótturson hans Hrein Loftsson lögmann. Árið 2006 bjó Tómas Sveinsson ásamt fjölskyldu sinni í húsinu.