Sigurveig Munda Gunnarsdóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 20. febrúar 2022 kl. 14:06 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 20. febrúar 2022 kl. 14:06 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Verndaði „Sigurveig Munda Gunnarsdóttir“ ([Breyta=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn) [Færa=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn)))
Fara í flakk Fara í leit

Sigurveig Munda Gunnarsdóttir húsfreyja í Reykjavík fæddist 9. september 1918 og lést 22. desember 1975.
Foreldrar hennar voru Gunnar Ingiberg Ingimundarson verkamaður, f. 17. apríl 1894 í Mjóafirði eystra, d. 4. mars 1965 í Reykjavík, og sambúðarkona hans Sveinfríður Ágústa Guðmundsdóttir húsfreyja í Reykjavík, síðar í Eyjum og á Grundarfirði, f. 1. ágúst 1896 á Þingeyri við Dýrafjörð, d. 10. apríl 1979 í Reykjavík.

Sigurveig var með foreldrum sínum, en þau slitu samvistir sínar. Hún fór með móður sinni til Eyja 1922, bjó með henni á Litlu-Grund við Vesturveg 24, í Götu við Herjólfsgötu 12, síðan henni og Pálma þar og síðast í Héðinshöfða við Hásteinsveg 36.
Þau fluttu til Reykjavíkur 1942 og síðan til Grundarfjarðar.
Hún eignaðist barn með Sveini 1938 og var síðar í sambúð með Friðjóni, eignaðist með honum fimm börn.
Þau Bjarni giftu sig 1954, eignuðust fimm börn.
Sigurveig lést 1975 og Bjarni 1988.

I. Barnsfaðir Sigurveigar var Sveinn Stefánsson bifreiðastjóri, vélamaður í Reykjavík, f. 9. september 1919 á Siglufirði, d. 3. mars 1982.
Barn þeirra:
1. Ágúst Engilbert Blómquist Sveinsson yfirverkstjóri á Akranesi, f. 10. janúar 1938, d. 5. janúar 2016.

II. Sambúðarmaður Sigurveigar var Friðjón Jóhannsson sjómaður í Reykjavík, f. 11. júní 1910 á Skálum á Langanesi, d. 22. apríl 1995. Foreldrar hans voru Jóhann Stefánsson bóndi á Skálum, f. 27. september 1876 á Læknesstöðum á Langanesi, d. 5. september 1946, og Kona hans María Friðriksdóttir húsfreyja, f. 26. mars 1882 í Efri-Sandvík í Grímsey, d. 9. september 1952 á Þórshöfn á Langanesi..
Börn þeirra:
2. Haraldur Friðjónsson, f. 23. janúar 1940.
3. Jóhann Gunnar Friðjónsson, f. 24. maí 1941.
4. Edda María Friðjónsdóttir (Gundersen), f. 18. apríl 1943.
5. Sigurdór Friðjónsson, f. 22. nóvember 1944.
6. Tómas Sævar Friðjónsson, f. 10. desember 1946.

III. Maður Sigurveigar, (6. júní 1954), var Bjarni Viggósson vélstjóri, járnsmiður í Reykjavík og Stykkishólmi, f. 5. júlí 1929 í Stykkishólmi, d. 27. apríl 1988. Foreldrar hans voru Viggó Bjarnason sjómaður, verkamaður í Stykkishómi, f. 27. september 1901 í Svefneyjum, d. 15. mars 1977 og kona hans, skildu, María Þórðardóttir húsfreyja, matráðskona í Reykjavík, f. 15. ágúst 1904 á Hofsstöðum í Gufudalssveit í Barð., d. 13. júlí 1980.
Börn þeirra:
7. Viggó Bjarnason, f. 7. október 1951.
8. Eggert Bjarni Bjarnason, f. 18. ágúst 1953.
9. Birna Sigríður Bjarnadóttir, f. 1. janúar 1956.
10. Brynja Hrönn Bjarnadóttir, f. 23. ágúst 1957.
11. Jarl Bjarnason, f. 14. mars 1959.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.