Christian Jakob Kemp (Godthaab)
Christian Jakob Kemp verslunarstjóri í Godthaab fæddist 1802 og lést í Eyjum 7. mars 1839.
Foreldrar hans voru Christian Kemp hershöfðingi í Holmen í Danmörku, f. 1770, d. 8. apríl 1813 og Christine Catharine Kock húsfreyja, f. um 1773, d. 20. desember 1831 í Kaupmannahöfn.
Christian kom til Eyja frá Kaupmannahöfn 1833, en kona hans og tvö börn 1834.
Með konu hans komu Ane Johanne Grüner þjónustustúlka, síðar nefnd Madama Roed í Frydendal, og Johanne Ludvike Kemp systir verslunarstjórans.
Þau Eramine giftu sig 1830, eignuðust sex börn, þar af fjögur í Eyjum.
Hjónin eignuðust 4 börn í Eyjum, en misstu tvö þeirra úr ginklofa og eitt barn 5 mánaða úr „krampa“, líklega ginklofi.
Christian Jakob verslunarstjóri lést 1839. Ekkja hans mun hafa flust frá Eyjum 1839. Á því ári var Jess Thomsen Christensen orðinn verslunarstjóri í Godthaab.
I. Kona Christians Jakob Kemp, (12. nóvember 1830), var Erasmine Elisabeth Kemp húsfreyja, f. 7. desember 1801 í Gentofte, d. 6. febrúar 1891 í Kaupmannahöfn.
Börn þeirra hér:
1. Gyrithe Kemp, f. 12. ágúst 1831 í Gentofte í Kaupmannahöfn, d. 25. september 1886 í Kaupmannahöfn.
2. Christian Kemp, f. um 1832, bjó í Kaupmannahöfn.
Börn þeirra fædd í Eyjum voru
3. Frederich Kemp, f. 29. janúar 1835, d. 19. febrúar 1835 úr ginklofa.
4. Doris Kemp, f. 8. október 1836 í Godthaab, d. 10. september 1909. Hún bjó í Juellinge. Maður hennar George Alexander Ulrich.
5. Helge Kemp, f. 1. september 1837, d. 5. október 1837 úr ginklofa.
6. Thora Elisabeth Kemp, f. 4. september 1838, d. 7. febrúar 1839 úr „krampa“, líklega ginklofi.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Manntöl.
- Prestþjónustubækur.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.