Ólafur Eyjólfsson (formaður)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 26. september 2019 kl. 12:28 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 26. september 2019 kl. 12:28 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Viglundur færði Ólafur Eyjólfsson á Ólafur Eyjólfsson (formaður))
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Ólafur Eyjólfsson var fæddur í Keflavík 28. september 1891 og lést 24. mars 1982. Ólafur fluttist alfarið til Eyja 1909 þá 18 ára gamall. Hann byrjaði sjómennsku á Lunda I með Guðleifi Elíssyni frá Brúnum. Eftir það keypti Ólafur Stefni (7 tonn) og var þar formaður. Árið 1924 keypti hann Kára I, seldi hann 1930 og keypti þá Skúla fógeta I og átti hann þar til hann sökk. Árið 1938 kom nýr Skúli fógeti til landsins og var þá með glæsilegri bátum flotans.


Heimildir

  • Sjómannablaðið Víkingur. 1 tbl. 1968. Farmanna- og Fiskimannasamband Íslands.