Árni Kláusson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 10. júlí 2006 kl. 11:12 eftir Margret (spjall | framlög) Útgáfa frá 10. júlí 2006 kl. 11:12 eftir Margret (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Árni Kláusson var prestur að Kirkjubæ í Vestmannaeyjum frá 1656 til 1673. Foreldrar hans voru Kláus Eyjólfsson að Hólmum í Landeyjum og kona hans Ingibjörg Þorleifsdóttir.

Árni varð stúdent frá Skálholtsskóla árið 1630 og tók prestvígslu 1637. Hann þjónaði Hvalsnesi um tíma. Gerðist sveinn Brynjólfs biskups Sveinsonar og fékk veitingu fyrir Kirkjubæjarprestakalli og þjónaði því til æviloka 1673.


Heimildir

  • Guðlaugur Gíslason: Eyjar gegnum aldirnar. Frásagnir af mannlífi og atburðum í Vestmannaeyjum frá gamalli tíð og nýrri. Reykjavík, 1982.