Gunnar Marel Jónsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 7. júlí 2006 kl. 10:11 eftir Margret (spjall | framlög) Útgáfa frá 7. júlí 2006 kl. 10:11 eftir Margret (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Gunnar Marel Jónsson fæddist 6. janúar 1891 og lést 7. maí 1979. Hann flutti til Vestmannaeyja þegar hann var tvítugur. Á veturna stundaði Gunnar sjómennsku en hann vann við smíðar á sumrin.

Gunnar Marel er þó líklega þekktastur fyrir störf sín í skipasmíði og störf hans fyrir Dráttarbraut Vestmannaeyja en þar var hann forstöðumaður frá 1925-1958. Eftir það hafði hann yfirumsjón með allri smíðavinnu til ársins 1968. Gunnar var sæmdur riddarakrossi fálkaorðunnar árið 1940 fyrir störf sín.