Richard Torfason

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 20. nóvember 2017 kl. 21:22 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 20. nóvember 2017 kl. 21:22 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Richard Torfason prestur, biskupsritari og bankamaður fæddist 16. maí 1866 í Jónshúsi og lést 3. september 1935.
Foreldrar hans voru Torfi Magnússon verslunarmaður í Juliushaab, f. 30. júlí 1835, d. 28. apríl 1917, og kona hans Jóhanna S.M. Bjarnasen, f. 22. júní 1839 í Sjólyst, d. 4. apríl 1910.

Richard fluttist með móður sinni til Reykjavíkur um eins árs aldur.
Hann var með foreldrum sínum í Reykjavík, gekk í Reykjavíkurskóla og lauk þar námi 1885, var við nám í háskólanum í Kaupmannahöfn 1885-1886, lauk prófi úr íslenska prestaskólanum 1888.
Richard var biskupsritari og kennari. Hann fékk Rafnseyri við Arnarfjörð 1891, Holtaþing í Rangárvallasýslu 1901 og sat í Guttormshaga, lét af embætti 1904.
Þá varð hann biskupsritari og bókari Landsbankans.
Richard lést 1935.

Richard var þríkvæntur.
I. Fyrsta kona hans, (2. maí 1892), var Málmfríður Kristín Lúðvíksdóttir, dóttir Lúðvíks Alexíussonar steinsmiðs í Reykjavík; hún fædd 11. júní 1871, d. 16. nóvember 1906.
Börn þeirra hér:
1. Gunnar Richardsson, f. 5. ágúst 1896, d. 21. mars 1918. Hann fór til Vesturheims og féll í heimstyrjöldinni fyrri.
2. Magnús Richardsson símstjóri, f. 26. október 1901, d. 7. febrúar 1977.

II. Önnur kona Richards, (6. febrúar 1909, skildu), var Kristín Jóhanna Jónsdóttir húsfreyja, dóttir sr. Jóns Þórðarsonar prests á Auðkúlu í A-Húnavatnssýslu; hún fædd 6. september 1874, d. 15. desember 1945. Þau voru barnlaus.

III. Þriðja kona Richards var Ólafía Ingibjörg Runólfsdóttir húsfreyja, dóttir Runólfs Ólafssonar útgerðarmanns á Seltjarnarnesi; hún fædd 9. nóvember 1897, d. 27. nóvember 1951. Þau voru barnlaus.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.is.
  • Íslenzkar æviskrár. Páll Eggert Ólason og fleiri. Hið íslenzka bókmenntafélag 1948-1956.
  • Manntöl.
  • Prestþjónustubækur.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.