Margrét Eyjólfsdóttir (Landlyst)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 26. október 2017 kl. 21:50 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 26. október 2017 kl. 21:50 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Margrét Eyjólfsdóttir húsfreyja fæddist 26. júní 1883 á Núpi u. Eyjafjöllum og lést 24. júní 1945.
Foreldrar hennar voru Eyjólfur Guðmundsson bóndi, f. 24. september 1846, d. 2. ágúst 1904, og kona hans Margrét Skúladóttir húsfreyja, f. 2. október 1850, d. 30. apríl 1912.
Margrét var hjá foreldrum sínum á Núpi 1890. Hún fluttist til Eyja frá Núpi 1909.
Þau Illugi bjuggu á Brekku við manntal 1910 með Elíasi Óskari og Margréti móður bústýrunnar, sem var þar í heimsókn. Þau Illugi giftu sig í lok ársins, eignuðust sjö börn, en misstu tvö þeirra á fyrstu árum þeirra.
Þau voru komin í Landlyst 1912 og bjuggu þar enn 1920, í Bifröst 1924, á Búrfelli um skeið, en á Laugalandi 1927, á Hjalteyri 1928 og þar bjuggu þau, er Illugi lést 1930. Margrét bjó þar ekkja með börnin 1930 og bjó þar við andlát 1945.

Maður Margrétar, (17. desember 1910), var Illugi Hjörtþórsson formaður, f. 26. júlí 1886 á Eyrarbakka, d. 30. nóvember 1930.
Börn þeirra voru:
1. Elías Óskar Illugason formaður, síðast í Hafnarfirði, f. 1. nóvember 1909 á Brekku, d. 13. maí 1975.
2. Einar Sölvi Illugason vélvirkjameistari, f. 1. apríl 1911 á Brekku, d. 28. ágúst 1972.
3. Gréta Vilborg Illugadóttir húsfreyja á Akri, síðast í Kópavogi, f. 13. apríl 1912 í Landlyst, d. 1. mars 1999.
4. Gunnlaugur Sæmundur Illugason, f. 28. nóvember 1914 í Landlyst, d. 2. júní 1916.
5. Gunnlaugur Hólm Illugason, f. 17. september 1917 í Landlyst, d. 24. nóvember 1918.
6. Guðný Inga Illugadóttir húsfreyja í Reykjavík, f. 28. júní 1920 í Landlyst, d. 16. nóvember 2001.
7. Þóra Hólm Illugadóttir Hind húsfreyja í Bandaríkjunum, f. 2. mars 1928 á Hjalteyri.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.is.
  • Manntöl.
  • Prestþjónustubækur.
  • Valdaætt. Niðjatal Valda Ketilssonar bónda á Sauðhúsvöllum undir Eyjafjöllum og k.h. Katrínar Þórðardóttur. Magnea Árnadóttir. Handrit 1992.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.