Björn Eiríkur Jónsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 14. október 2017 kl. 20:58 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 14. október 2017 kl. 20:58 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Björn Eiríkur Jónsson fæddist í Stóra-Gerði í Vestmannaeyjum 16. desember 1884 og lést 30. apríl 1979. Hann var sonur Jóns Jónssonar og Guðbjargar Björnsdóttur.

Fyrri kona Björns var Hallbera Illugadóttir en hún lést árið 1934. Seinni kona Björns var Brynheiður Ketilsdóttir úr Mýrdal.
Björn bjó í Norður-Gerði.
Börn Björns og Hallberu:
Guðbjörg Árný Björnsdóttir, f. 13. desmber 1907.
Indlaug Gróa Valgerður Björnsdóttir, f. 23. febrúar 1909.
Jón Björnsson, f. 18. janúar 1913.
Björn var sjómaður og formaður á opnu skipi. Einnig stundaði hann búskap í Gerði ásamt systur sinni og mági. Hann hafði fé úti í Elliðaey og var hjálpsamur við að koma fólki út í Elliðaey.

Guðbjörg Árný Björnsdóttir.

Heimildir

  • Manntal 1920.
  • Sjómanndagsblað Vestmannaeyja. 1979.