Laufás
Húsið Laufás stóð við Austurveg 5 og var áður fyrr Vestasti-Hlaðbær að Vilborgarstöðum. Húsið var byggt af Jóni Á. Kristjánssyni sem m.a. var söngstjóri „Principal“kórsins svonefnda en það var blandaður kór sem starfaði í Vestmannaeyjum á árunum 1903 til 1905.
Árið 1905 keypti Þorsteinn Jónsson] húsið og flutti þangað inn ásamt konu sinni Elínborgu Gísladóttur en lét rífa það árið 1912 og byggði nýtt hús að Laufási. Var þetta nýja hús byggt úr timbri ofan á steyptum kjallara og með rúmgóðu risi. Þorsteinn var mikill útgerðarmaður og var einn af upphafsmönnum vélbátaútgerðar í Eyjum. Hann er einnig þekktur fyrir bækur sínar tvær; ævisögu sína er nefnist Formannsævi í Eyjum og Aldahvörf í Eyjum, sem er útgerðarsaga Vestmannaeyja fram til 1930.
Fyrir gosið 1973 bjuggu þar Dagný, dóttir Þorsteins, og maður hennar Bogi Finnbogason, ásamt tveimur börnum sínum.
Heimildir
- Guðjón Ármann Eyjólfsson: Vestmannaeyjar - byggð og eldgos. Reykjavík 1973.