Yngvi Þorkelsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 21. júní 2006 kl. 15:07 eftir Margret (spjall | framlög) Útgáfa frá 21. júní 2006 kl. 15:07 eftir Margret (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Yngvi Þorkelsson gat sér gott frægðarorð í Ameríku fyrir mikið starf og listrænt í þágu leiklistarinnar. Yngvi fann sjálfan sig í þeim efnum ef svo mætti segja á leiksviði Leikfélags Vestmannaeyja, Yngvi fæddist í Reykjavík en ólst upp í Vestmannaeyjum, sonur Þorkels Ólafssonar og Jóhönnu Guðmundsdóttur.

Yngvi fór vestur til Seattle á Kyrrahafsströnd vorið 1926 en áður hafði hann dvalist nokkra mánuði í Kanada og meðal annars lagt þar stund á enskunám. Á Kyrrahafsströndinni varði hann öllum tómstundum sínum til náms, en vann annars öll störf sem buðust. Honum var leiklistin ríkust í huga.

Árið 1928 keypti hann sér einkakennslu í framsögu og leiklist. Síðan lá leið hans á amerísk leiksvið. Jafnframt leikstarfinu í amerískum leikhúsum starfaði Yngvi mikið í félagslífi landa sinna þar vestra. Í einu Vesturheimsblaðinu segir um þennan Vestmannaeying: Hann nýtur mikilla vinsælda í stöðu sinni og starfi. Það stafar ekki aðeins af hugkvæmni hans og fjölhæfni í öllu, sem lýtur að leiklist, leiksviðsgerð, leikaragervum og margþættum öðrum undirbúningi leiksýninganna, heldur og ekki síst persónan sjálf, sérstök prúðmennska og jafnvægi í skapgerð. Sjálfur er hann góður leikari.

Yngvi stundaði nám í 4 ár við listaháskólann The Comich School í Seattle sem var þá talinn einna bestur sinnar tegundar í Ameríku. Þaðan útskrifaðist hann í júní 1933 með þann vitnisburð að hann teldist fjölhæfasti nemandi skólans. Hann hlaut hæstu einkunn í leiklist árið 1932 og styrki hlaut hann úr tveimur sjóðum.

Jóhanna, móðir Yngva, var hálfsystir Friðriks Guðmundssonar verkamanns í Batavíu.



Heimildir

  • Þorsteinn Þ. Víglundsson. Blik, ársrit Vestmannaeyja. 1965.