Regína Stefánsdóttir (Einarshöfn)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 2. nóvember 2016 kl. 19:31 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 2. nóvember 2016 kl. 19:31 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Ný síða: '''Guðný ''Regína'' Stefánsdóttir''' verkakona fæddist 5. desember 1905 á Norðfirði og lést 24. júlí 1986.<br> Foreldrar hennar voru Stefán Bjarnason bóndi og sjómaður...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Guðný Regína Stefánsdóttir verkakona fæddist 5. desember 1905 á Norðfirði og lést 24. júlí 1986.
Foreldrar hennar voru Stefán Bjarnason bóndi og sjómaður í Seldal og á Grund í Norðfirði, f. 9. janúar 1853, d. 3. febrúar 1915, og kona hans Guðbjörg Matthíasdóttir húsfreyja, f. 11. nóvember 1865, d. 11. janúar 1947.

Regína var með foreldrum sínum á Grund í Norðfirði 1910, var á Helgustöðum í Reyðarfirði 1920.
Hún fluttist frá Norðfirði til Eyja 1924, var lausakona (þ.e. án fastrar ráðningar til vinnu) í Einarshöfn 1925, á Heiðarhól 1930, á Ingólfshvoli 1931 og í Varmadal 1934.
Regína fluttist úr Eyjum til Stokkseyrar, var þar í Pálsbæ og Baldursheimi, en bjó að síðustu í Reykjavík.

Barnsfaðir Regínu að tveim börnum var Páll Þórðarson frá Klöpp á Stokkseyri, verkamaður í Varmadal, síðar kyndari á Akureyri, f. 3. október 1903, d. 19. maí 1992.
Börn þeirra voru:
1. Guðjón Högni Pálsson sjómaður, farmaður, hermaður, verslunarmaður, f. 13. desember 1925 í Einarshöfn, d. 15. nóvember 2001.
2. Páll Hörður Pálsson skipstjóri, f. 17. janúar 1931 á Ingólfshvoli, d. 7. maí 1990.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.