Jón Sigurðsson (Stóra-Gerði)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 24. mars 2016 kl. 12:18 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 24. mars 2016 kl. 12:18 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Ný síða: '''Jón Sigurðsson''' frá Gerði, síðar bóndi á Tjörnum u. Eyjafjöllum fæddist 24. mars 1857 í Túni og lést 5. apríl 1932.<br> Foreldra...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Jón Sigurðsson frá Gerði, síðar bóndi á Tjörnum u. Eyjafjöllum fæddist 24. mars 1857 í Túni og lést 5. apríl 1932.
Foreldrar hans voru Sigurður Jónsson bóndi, sjómaður, f. 14. mars 1825 í Gularáshjáleigu í A-Landeyjum, fórst með þilskipinu Hansínu í mars 1863, og kona hans Járngerður Sigurðardóttir húsfreyja, f. 17. september 1830 á Borgareyrum u. Eyjafjöllum, d. 23. desember 1876 á Skækli (Guðnastöðum) í A-Landeyjum.

Jón var með foreldrum sínum í bernsku, en hann missti föður sinn, er hann var 6 ára.
Hann fluttist í Landeyjar með móður sinni og systkinum 1864, var niðursetningur í Austurhjáleigu þar 1870, en móðir hans var þar vinnukona.
Jón var vinnumaður í Efri-Rotum u. Vestur-Eyjafjöllum 1880, bóndi í Seljalandsseli þar 1890 með Ólöfu og 4 börnum þeirra, bóndi á Tjörnum þar 1901 með Ólöfu og börnum. Við höfðu bæst Járngerður og Sigurjón, en Guðjón var látinn.
Þau bjuggu enn á Tjörnum 1910. Jón var lausamaður á Búðarhóli í A-Landeyjum 1920, en Ólöf skilin vinnukona á Tjörnum.
Jón lést 1932.

Kona Jóns, (6. október 1882, skildu), var Ólöf Eyjólfsdóttir húsfreyja, f. 27. nóvember 1852, d. 17. júlí 1930.
Börn þeirra:
1. Sigurður Jónsson, f. 25. apríl 1882, d. 6. apríl 1911.
2. Anna Jónsdóttir vinnukona á Tjörnum, f. 15. janúar 1883, d. 15. nóvember 1962.
3. Einar Jónsson bóndi á Tjörnum, f. 11. september 1887, d. 17. apríl 1967.
4. Guðjón Jónsson, f. 15. mars 1890, d. 6. janúar 1891.
5. Járngerður Jónsdóttir vinnukona á Tjörnum 1920, f. 23. desember 1891, d. 31. júlí 1974.
6. Eyjólfur Jónsson skipstjóri á Suðurnesjum og Akranesi, tvíburi móti Járngerði, f. 23. desember 1891, d. 21. ágúst 1967.
7. Sigurjón Jónsson úrsmiður í Reykjavík, f. 29. janúar 1897, d. 22. september 1969.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.