Friðrik Sigjónsson (Héðinshöfða)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 14. nóvember 2015 kl. 18:31 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 14. nóvember 2015 kl. 18:31 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Viglundur færði Friðrik Sigjónsson á Friðrik Sigjónsson (Héðinshöfða))
Fara í flakk Fara í leit

Friðrik Sigjónsson sjómaður frá Héðinshöfða fæddist 22. október 1920 þar og drukknaði 23. desember 1944.
Foreldrar hans voru Sigjón Halldórsson vélstjóri og trésmiður frá Bakka á Mýrum í A-Skaft., f. 31. júlí 1888, d. 19. apríl 1931, og kona hans Sigrún Runólfsdóttir frá Króki í Flóa, húsfreyja, f. 26. maí 1889, d. 11. ágúst 1991.

Friðrik ólst upp með foreldrum sínum, en faðir hans lést er hann var 10 ára. Hann var með móður sinni í Sjávargötu 1940.
Friðrik var sjómaður í Eyjum.
Samkvæmt frásögn Gústafs bróður hans var Friðrik að komu frá Höfn í Hornafirði síðla í desember 1944.
Hann fékk far með m.s. Búðakletti Gk 250 frá Höfn ásamt öðrum manni, og var áformað að Gústaf flytti Friðrik frá borði á Ytri-Höfninni, er báturinn kæmi þar við.
Í blískaparveðri sigldu Gústaf og félagi á trillu út á höfnina kvöldið, sem skipið átti að koma til Eyja. Þeir biðu skipsins, en urðu einskis varir, lónuðu út fyri Klettsnef og biðu.
Biðin bar engan árangur.
Báturinn strandaði svo við Reykjanes á Þorláksmessu 1944. Áhöfninni var bjargað á línu úr landi, en farþegarnir fórust.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.