Þórarinn Árnason (Eystri Oddsstöðum)
![](/images/thumb/9/96/KG-mannamyndir_16035.jpg/250px-KG-mannamyndir_16035.jpg)
Þórarinn Árnason fæddist 8. október 1856 og lést 25. apríl 1943. Eiginkona hans var Elín Jónsdóttir. Þau fluttust til Eyja árið 1908 með börn og bú. Hann bjó í Reykjavík er hann lést.
Á meðal barna þeirra hjóna voru Eyvindur, Oddgeir og Árni.
Þórarinn Árnason sat í fyrstu bæjarstjórn Vestmannaeyja sem var kosin árið 1919.