Magnús Þórðarson (assistent)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 16. júní 2015 kl. 12:27 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 16. júní 2015 kl. 12:27 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Ný síða: '''Magnús Þórðarson''' búðarþjónn fæddist (1745).<br> Foreldrar hans voru Þórður Erlendsson bóndi á Hvoli í Mýrdal, síðar bóndi og hreppstjóri í Seli í A-Landeyj...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Magnús Þórðarson búðarþjónn fæddist (1745).
Foreldrar hans voru Þórður Erlendsson bóndi á Hvoli í Mýrdal, síðar bóndi og hreppstjóri í Seli í A-Landeyjum, f. 1713, á lífi 1771, og kona hans Petrónella Bjarnadóttir húsfreyja, f. 1725, á lífi 1767.

Bróðir Magnúsar var Bjarni Þórðarson tómthúsmaður á Löndum f. 1765 í Seli í A-Landeyjum, d. 19. desember 1836.

Magnús er nefndur eitt af börnum þessarra foreldra í Sýslumannaæfum, „Magnús assistent í Vestmannaeyjum“.
Hann var verslunarþjónn í Eyjum, en frekari vitneskja um hann er ekki í hendi.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.is.
  • Landeyingabók – Austur-Landeyjar. Valgeir Sigurðsson og fleiri. Ritstjóri: Ragnar Böðvarsson. Austur-Landeyjahreppur, Gunnarshólma 1999.
  • Sýslumannaæfir IV, bls. 632. Bogi Benediktsson.
  • Vestur-Skaftfellingar 1703-1966. Björn Magnússon. Leiftur 1970-1973.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.