Guðmundur Guðmundsson (Búastöðum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 11. mars 2015 kl. 21:49 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 11. mars 2015 kl. 21:49 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Ný síða: '''Guðmundur Guðmundsson''' vinnumaður á Búastöðum fæddist 1830 og drukknaði 14. maí 1857.<br> Foreldrar hans voru Guðmundur Guðmundsson bóndi í Syðri-R...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Guðmundur Guðmundsson vinnumaður á Búastöðum fæddist 1830 og drukknaði 14. maí 1857.
Foreldrar hans voru Guðmundur Guðmundsson bóndi í Syðri-Rotum u. Eyjafjöllum, f. 1795, d. 26. nóvember 1855, og kona hans Ólöf Eyjólfsdóttir húsfreyja, f. 1795, d. 24. júlí 1860.

Guðmundur var með foreldrum sínum til fullorðinsára.
Hann fluttist að Búastöðum frá Rotum 1854 og var vinnumaður þar til dd.
Hann drukknaði í Höfninni 1857 ásamt Þorsteini Guðmundssyni í Fagurlyst.
Hann var ókvæntur og barnlaus í Eyjum.


Heimildir