Ólafur Erlendsson (Elínarhúsi)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 6. mars 2015 kl. 14:23 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 6. mars 2015 kl. 14:23 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Verndaði „Ólafur Erlendsson (Elínarhúsi)“ (‎[edit=sysop] (ótiltekinn)))
Fara í flakk Fara í leit

Ólafur Erlendsson tómthúsmaður í Elínarhúsi fæddist 20. september 1799 í Finnshúsum í Fljótshlíð og lést 27. október 1833.
Foreldrar hans voru Erlendur Ólafsson bóndi í Finnshúsum en síðast í Jónskoti í Djúpárhreppi í Holtum, f. 1767, d. 8. júlí 1834, og kona hans Margrét Jónsdóttir húsfreyja og bóndi, f. 1770, d. 18. október 1845.

Ólafur var með foreldrum sínum í Finnshúsum 1801, hjá þeim á Miðbakka í Djúpárhreppi 1816.
Hann mun haa verið kominn til Eyja 1826, var tómthúsmaður í Elínarhúsi 1827 og við giftingu þeirra Valgerðar og enn 1828.
Þau fluttust til Lands og þar lést Ólafur 1833.

I. Kona Ólafs, (18. janúar 1827), var Valgerður Hallsdóttir húsfreyja frá Presthúsum, f. 20. febrúar 1793, d. 22. júní 1863.
Börn finnast ekki í Eyjum.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Holtamannabók III –Djúpárhreppur. Valgeir Sigurðsson og fleiri. Ritstjórn: Ragnar Böðvarsson. Rangárþing ytra 2010.
  • Íslendingabók.is.
  • Manntöl.
  • Prestþjónustubækur.