Dagmar Dudman Tómasdóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 22. nóvember 2014 kl. 11:59 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 22. nóvember 2014 kl. 11:59 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Verndaði „Dagmar Dudmann Tómasdóttir“ (‎[edit=sysop] (ótiltekinn)))
Fara í flakk Fara í leit

Dagmar Tómasdóttir verslunarmaður, f. 27. maí 1898 í Hlíðarhúsi og lést 8. maí 1919 í Reykjavík.
Móðir hennar var Dómhildur Guðmundsdóttir , f. 21. mars 1865 í Breiðahlíð í Mýrdal, d 19. desember 1944 í Keflavík.
Faðir hennar var Thomas Dudman, enskur skipstjóri.

Tvíburasystir Dagmarar var Karólína Dudman Tómasdóttir.

Dagmar ólst upp hjá móður sinni á Suðurnesjum í fyrstu, var á Hrúðunesi á Útskálum 1907, fluttist þá til Reykjavíkur og var barn hjá Kristínu Gestsdóttur húsfreyju og Þorsteini Guðmundssyni yfirfiskimatsmanni í Þinholtsstræti 13 1910. Hún var „verslunarstúlka“ í Reykjavík, er hún lést á Landakotsspítala 1919.


Heimildir