Sigríður Guðmundsdóttir (Kokkhúsi)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 22. febrúar 2014 kl. 17:11 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 22. febrúar 2014 kl. 17:11 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Verndaði „Sigríður Guðmundsdóttir (Kokkhúsi)“ (‎[edit=sysop] (ótiltekinn)))
Fara í flakk Fara í leit

Sigríður Guðmundsdóttir húsfreyja í Götu í Holtum 1821-1823, en síðan í Kokkhúsi í Eyjum, f. 2. maí 1793 í Austurhól í Nesjum, A-Skaft., d. 30. október 1833. Hún var Sigríður eldri til aðgreiningar frá Sigríði systur hennar.
Faðir hennar var Guðmundur Guðmundsson bóndi í Miðhól í Nesjum þar 1801, f. um 1756, á lífi 1804. Kona hans og móðir Sigríðar var Margrét Hannesdóttir húsfreyja í Miðhól 1801, f. um 1766, d. 13. apríl 1804. Foreldrar hennar voru Hannes Jónsson bóndi í Meðalfelli 1801, f. um 1738, d. 24. janúar 1814 og fyrri kona hans Sigríður Þórðardóttir húsfreyja, f. um 1735, d. 28. desember 1784.
Maður Sigríðar var Gísli Andrésson sjómaður, fæddur 16. maí 1791 á Bakkavelli í Hvolhreppi, og lést 23. desember 1855. Sigríður var fyrsta kona hans.
Börn þeirra voru:
1. Andrés vinnumaður á Ofanleiti, f. 16. október 1820, d. 6. september 1842, ókvæntur.
2. Margrét Gísladóttir¹) húsfreyja í Spanish Fork í Utah, f. 20. nóvember 1822, d. í Spanish Fork 14. júní 1914, kona Samúels Bjarnasonar.
3. Vilborg, f. 6. september 1825. Hún mun hafa dáið ung.
4. Hannes þurrabúðarmaður í Grímshjalli, f. í september 1828, d. 4. ágúst 1900, kvæntur Guðríði Guðmundsdóttur. Þau sildu.
5. Guðmundur, f. 22. júlí 1830, d. 30. s. mán.
6. Snjófríður, f. 29. ágúst 1831, d. 5. september s. ár.
7. Sigríður, f. 11. mars 1833, d. 22. mars s. ár.
¹) Samkv. Holtamannabók var Margrét Gísladóttir dóttir fyrstu konu Gísla, Sigríðar Guðmundsdóttur, en ekki dóttir Þórelfar Kortsdóttur eins og sumsstaðar stendur.


Heimildir