Guðrún Jónsdóttir (Fagurlyst)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 15. júlí 2014 kl. 22:00 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 15. júlí 2014 kl. 22:00 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Ný síða: '''Guðrún Jónsdóttir''' húsfreyja í Lágu-Kotey í Meðallandi, síðast í dvöl í Eyjum, fæddist 19. desember 1801 og lést 18. febrúar 1888 á Miðhúsum.<br> Foreldra...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Guðrún Jónsdóttir húsfreyja í Lágu-Kotey í Meðallandi, síðast í dvöl í Eyjum, fæddist 19. desember 1801 og lést 18. febrúar 1888 á Miðhúsum.
Foreldrar hennar voru Jón Árnason bóndi í Meðallandi, f. 1770, og kona hans Helga Einarsdóttir, f. 1770, d. 24. maí 1830.

Guðrún var með foreldrum sínum til ársins 1819.
Hún var vinnukona í Efri-Ey í Meðallandi 1819-1821, í Klauf þar 1822-1824, húskona þar 1824-1825, í Fjósakoti þar 1825-1831.
Guðrún var húsfreyja á Grímsstöðum í Meðallandi 1831-1832, á Undirhrauni þar 1832-1840, í Lágu-Kotey 1840-1854.
Hún var ekkja í Lágu-Kotey frá 1851, bústýra þar 1854-1856, vinnukona á Grímsstöðum 1856-1858, í Klauf 1858-1860.
Hún var hjá dóttur sinni í Lágu-Kotey 1861-1869.
Guðrún fluttist til Eyja 1869, var hjá Einari syni sínum í Fagurlyst 1870, hjá Kristínu dóttur sinni á Löndum 1880.
Hún er líklega sú, sem lést á Miðhúsum 1888.

Maður Guðrúnar, (1. ágúst 1824), var Eiríkur Runólfsson bóndi, f. 1. júní 1798, d. 9. júní 1851.
Börn þeirra í Eyjum voru:
1. Runólfur Eiríksson vinnumaður á Kirkjubæ, f. 1828.
2. Kristín Eiríksdóttir húsfreyja á Löndum, f. 1842.
3. Einar Eiríkssongullsmiður á Löndum, f. 1847.


Heimildir