Valgerður Jónsdóttir (Vesturhúsum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 6. apríl 2013 kl. 14:28 eftir Víglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 6. apríl 2013 kl. 14:28 eftir Víglundur (spjall | framlög) (Ný síða: '''Valgerður Jónsdóttir''' húsfreyja á Vesturhúsum fæddist 9. ágúst 1805 í Bakkakoti í Meðallandi og lést 17. júní 1870 í Eyjum.<br> Faðir hennar var Jón bóndi í ...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Valgerður Jónsdóttir húsfreyja á Vesturhúsum fæddist 9. ágúst 1805 í Bakkakoti í Meðallandi og lést 17. júní 1870 í Eyjum.
Faðir hennar var Jón bóndi í Bakkakoti 1816, f. 1770, Árnason bónda víða, en síðast í Botnum í Meðallandi, f. 1742, d. 14. október 1825 í Botnum, Eiríkssonar bónda í Hörgsdal, f. 1691, d. 1753, Bjarnasonar, og konu hans, Hildar húsfreyju, f. 1701, Rafnkelsdóttur.
Móðir Jóns á Bakkakoti og fyrri kona (skildu fyrir 1785) Árna í Botnum var Valgerður húsfreyja, f. 1747, Magnúsdóttir bónda og hreppstjóra í Staðarholti í Meðallandi, f. 1714, d. 30. september 1788 í Staðarholti, Guðmundssonar, og konu Magnúsar í Staðarholti, Guðleifar húsfreyju, f. 1709, d. 1782, Sæmundsdóttur.

Móðir Valgerðar á Vesturhúsum og kona Jóns í Bakkakoti (5. ágúst 1796) var Helga húsfreyja, f. 1770, d. 24. maí 1830, Einarsdóttir bónda á Syðri-Steinsmýri og Grímsstöðum í Meðallandi, en er farinn vestur til Árnessýslu 1784, d. fyrir 1787, Vigfússonar, og konu Einars, Guðnýjar húsfreyju, f. 1744, d. líklega 1806, Björnsdóttur.

Valgerður var hjá foreldrum sínum í Bakkakoti 1816, húsfreyja á Vesturhúsum 1845, 1850 og 1860.

Maður Valgerðar á Vesturhúsum var Eyjólfur Erasmusson bóndi og hreppstjóri á Vesturhúsum, f. 1807.

Börn Valgerðar og Eyjólfs hér:
1. Katrín Eyjólfsdóttir húsfreyja á Vesturhúsum, f. 28. júní 1834, d. 2. apríl 1915.
2. Fósturbarn 1850 og 1855 var Kristín Eiríksdóttir, 8 og 13 ára. Hún var systurdóttir Valgerðar, dóttir Guðrúnar Jónsdóttur húsfreyju í Lágu-Kotey í Meðallandi 1845. Kristín var vinnukona í Helgahjalli hjá Katrínu Eyjólfsdóttur frænku sinni 1860, hjú í Frydendal hjá Madama Roed 1870. Mun vera sú, sem fór til Utah 1881.
3. Fósturbarn þeirra Eyjólfs 1860 var Eyjólfur Eiríksson, 7 ára. Hann var sonur Eiríks Eiríkssonar og Katrínar Hafliðadóttur vinnukonu í Nýjabæ u. Eyjafjöllum, - barn fyrir hjónaband. Eyjólfur fór til Utah 1883.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Vestur-Skaftfellingar 1703-1966. Björn Magnússon. Leiftur 1970-1973.
  • Vesturfaraskrá 1870-1914. Júníus H. Kristinsson. Sagnfræðistofnun Háskóla Íslands 1983.
  • Manntöl.
  • Íslendingabók.is.