Jón Þorkelsson (Þorkelshjalli)
Jón Þorkelsson frá Þorkelshjalli fæddist 1833 í Fljótshlíð og fórst með þilskipinu Helgu í apríl 1867.
Móðir hans var Helga Þorsteinsdóttir vinnukona, f. 26. október 1805, d. 24. desember 1869.
Jón var 2 ára tökubarn á Breiðabólstað í Fljótshlíð 1835, en þar var móðir hans vinnukona. Hann var tökubarn, með móður sinni, vinnukonu í Álfhólum í V-Landeyjum, 1840, finnst ekki svo að víst sé 1845, léttadrengur í Ólafshúsum 1850, vinnumaður á Vesturhúsum 1855, vinnumaður á verslunarstaðnum Juliushaab 1860.
Hann fórst með þilskipinu Helgu í apríl 1867.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Íslendingabók.is.
- Manntöl.
- Prestþjónustubækur.
- Rangvellingabók. Valgeir Sigurðsson. Rangárvallahreppur, Hellu 1982.