Þorgerður Guðmundsdóttir (Brekkuhúsi)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 8. mars 2014 kl. 17:45 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 8. mars 2014 kl. 17:45 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Verndaði „Þorgerður Guðmundsdóttir (Brekkuhúsi)“ (‎[edit=sysop] (ótiltekinn)))
Fara í flakk Fara í leit

Þorgerður Guðmundsdóttir vinnukona fæddist 15. febrúar 1824 að Ártúnum á Rangárvöllum og lést 1. júní 1866.
Foreldrar hans voru Guðmundur Benediktsson bóndi í Voðmúlastaða-Austurhjáleigu (nú Búland) í A-Landeyjum, f. 1779 í Ólafshúsum u. Eyjafjöllum, d. 13. febrúar 1848, og kona hans Guðrún Vigfúsdóttir húsfreyja, f. 18. júní 1789 í Búðarhóls-Austurhjáleigu (nú Hólavatn), d. 14. janúar 1842.

Systkini Þorgerðar í Eyjum voru:
1. Sigríður Guðmundsdóttir húsfreyja í Hólmahjáleigu í A-Landeyjum, síðar í Draumbæ f. 26. desember 1813, drukknaði 29. september 1855.
2. Árni Guðmundsson bóndi í Brekkuhúsi f. 18. desember 1817, d. 20. júlí 1889.
3. Guðmundur Guðmundsson gullsmiður, mormónatrúboði og forseti safnaðarins í Eyjum, síðar í Lehi í Utah, f. 10. mars 1825, d. 20. september 1883, kvæntur Maríu Guðmundsson (dönsk kona).
4. Guðrún Guðmundsdóttir húsfreyja í Vanangri, f. 19. september 1828, d. 9. september 1860, gift Magnúsi Eyjólfssyni silfursmið.
5. Benedikt Guðmundsson vinnumaður í Háagarði, f. 19. apríl 1821, drukknaði 26. mars 1842. Hann var faðir Péturs í Þorlaugargerði ættföður eldri Oddsstaðasystkina.

Þorgerður var 11 ára „uppeldisbarn“ í Skarðsseli á Landi 1835 hjá Málhildi föðursystur sinni og Hreiðari Helgasyni, uppeldisdóttir hjá þeim 1840.
Hún var 22 ára vinnukona í Hólmahjáleigu í A-Landeyjum hjá Sigríði systur sinni og Níels Þórarinssyni 1845 og vinnukona á Hólmum þar 1850
Til Eyja fluttist hún 1857 frá Landeyjum, varð vinnukona í Brekkuhúsi hjá Árna bróður sínum og Þóru Stígsdóttur til dd.
Hún lést 1. júní 1866 úr „kvefsótt“, ógift og barnlaus.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Landeyingabók – Austur-Landeyjar. Valgeir Sigurðsson og fleiri. Ritstjóri: Ragnar Böðvarsson. Austur-Landeyjahreppur, Gunnarshólma 1999.
  • Landmannabók – Landsveit. Valgeir Sigurðsson, Ragnar Böðvarsson og fleiri. Rangárþing ytra, Hellu 2003.
  • Manntöl.
  • Prestþjónustubækur.