Bóel Jensdóttir (Oddsstöðum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 25. október 2013 kl. 21:09 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 25. október 2013 kl. 21:09 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Bóel Jensdóttir húsfreyja og sýslumannskona á Oddsstöðum fæddist 1783 á Eyvindarmúla í Fljótshlíð og lést 22. maí 1855.

Faðir hennar var Jens bóndi í Hallskoti, Múlakoti og Ámundakoti í Fljótshlíð, f. 1747, Sigurðsson, bónda í Múlakoti, bónda og umboðsmanns á Þykkvabæjarklaustri í Álftaveri, síðar bónda á Surtsstöðum í Jökulsárhlíð í N-Múl., f. 1720, á lífi 1754, drukknaði í Lagarfljóti, Eyjólfssonar „spaka‟, „mókolls‟, bónda og lögréttumanns (1724-1746) í Eyvindarmúla, f. um 1689, d. 24. nóvember 1781, Guðmundssonar, og konu Eyjólfs, Hildar húsfreyju, f. 1697, Þorsteinsdóttur prests í Holti Oddssonar.
Móðir Jens í Hallskoti og kona Sigurðar í Múlakoti var Bóel húsfreyja, f. 1724, d. 26. febrúar 1797, Jensdóttir Wíum sýslumanns í Múlaþingi, (ættföður Wíum-ættar), f. (1690), d. 1740, Péturssonar Wíum, og konu Jens Wíum, Ingibjargar húsfreyju, f. 1690, á lífi 1762, Jónsdóttur.

Móðir Bóelar á Oddsstöðum og kona Jens í Hallskoti var Arnfríður húsfreyja í Hallskoti 1801, f. 1744, Erlendsdóttir bónda á Austur-Torfastöðum í Fljótshlíð, f. 1706, d. 16. september 1767, Einarssonar bónda á Voðmúlastaða-Miðhjáleigu í A-Landeyjum, f. 1662, d. 1707 (í bólunni), Jónssonar, og konu Einars, Guðrúnar húsfreyju, f. 1671, d. 1707 (í bólunni), Erlendsdóttur.
Móðir Arnfríðar í Hallskoti og kona Erlendar á Austur-Torfastöðum var Guðrún húsfreyja, f. 1705, Magnúsdóttir bónda á Grafarbakka í Hrunamannahreppi, f. 1661, á lífi 1729, Jónssonar, og konu Magnúsar, Hallberu húsfreyju, f. 1673, á lífi 1729, Ásmundsdóttur.

Maður Bóelar á Oddsstöðum var Jón Þorleifsson sýslumaður í Eyjum 1801-1812, f. um 1769, drukknaði við Eyjar 22. apríl 1815. Hún var síðari kona hans.
Börn Bóelar og Jóns hér voru:
1. Guðrún Jónsdóttir, f. 1804. Hún var á Oddsstöðum 1816; mun ekki hafa náð fullorðinsaldri.
2. Þórður Jónsson trésmiður, f. 1805. Ókvæntur og barnlaus.
3. Þórunn Jónsdóttir, d. 30. ágúst 1805, 6. daga gömul, úr ginklofa.
4. Arnfríður Jónsdóttir húsfreyja á Oddsstöðum, f. 1807, kona Guðmundar Sigurðssonar bónda og járnsmiðs.
5. Jens Jónsson, f. 23. september 1810, d. 29. september 1810.
6. Ari Jónsson, f. 21. ágúst 1812, d. 28. september 1812.
7. Ragnheiður Jónsdóttir, d. 25. ágúst 1805.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.is.
  • Íslenzkar æviskrár. Páll Eggert Ólason og fleiri. Hið íslenzka bókmenntafélag 1948-1956.
  • Lögréttumannatal. Sögurit. Einar Bjarnason. Sögufélag gaf út. Ísafoldarprentsmiðja h.f. 1952-1955.
  • Manntöl.
  • Ættir Austfirðinga. Einar Jónsson og fleiri. Austfirðingafélagið í Reykjavík 1953-1968.