Vigfús Jónsson (Hólshúsi)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 22. október 2013 kl. 12:49 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 22. október 2013 kl. 12:49 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Ný síða: '''Vigfús Jónsson''' tómthúsmaður í Hólshúsi fæddist 6. október 1822 og lést í apríl 1867.<br> Foreldrar hans voru [[Jón Einarsson eldri (Gjábakka)|Jón Einarsson...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Vigfús Jónsson tómthúsmaður í Hólshúsi fæddist 6. október 1822 og lést í apríl 1867.
Foreldrar hans voru Jón Einarsson eldri bóndi á Gjábakka, f. 1789, d. 21. mars 1838, og kona hans Margrét Vigfúsdóttir húsfreyja, skírð 1795, d. 23. febrúar 1836.

Vigfús var 12 ára niðursetningur á Kanastöðum í A-Landeyjum 1835, vinnumaður á Snotru þar 1840, vinnumaður á Bergþórshvoli í V-Landeyjum 1845.
Á árinu 1850 var hann vinnumaður í Stakkagerði hjá Ásdísi Jónsdóttur og Anders Asmundsen skipstjóra, og þar var Margrét Skúladóttir, síðar fyrri kona hans, vinnukona.
Hann var 37 ára ekkill í Hólshúsi 1860 með drengina Markús 9 ára og Anders Vilhelm 8 ára og bústýruna Kristínu Jónsdóttur 39 ára. Hún var systir Vigfúsar.
Vigfús kvæntist aftur og þá Nikólínu Ottadóttur hálfsystur Margrétar fyrri konu sinnar. Hún lifði Vigfús.

I. Fyrri kona Vigfúsar var Margrét Skúladóttir húsfreyja í Hólshúsi, f. 11. nóvember 1824, d. 16. október 1859.
Börn þeirra hér nefnd voru:
1. Markús Vigfússon, f. 25. desember 1851.
2. Anders Vilhelm Vigfússon, f. 7. júlí 1853.
II. Síðari kona Vigfúsar, var Nikolína Ottadóttir, f. 12. júní 1830, d. 21. apríl 1912. Hún eignaðist 3 börn.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.is.
  • Landeyingabók – Austur-Landeyjar. Valgeir Sigurðsson og fleiri. Ritstjóri: Ragnar Böðvarsson. Austur-Landeyjahreppur, Gunnarshólma 1999.
  • Manntöl.