Úr fórum Árna Árnasonar. Verk annarra/Kveðið í Slippnum
- Skýfall
- Vantar þurrk og vantar birtu,
- vætan fellir mig.
- Nú þyrftu allir aukaskirtu
- utan yfir sig. —
- Rosatíð
- Ekki er búið enn að kanna
- alla hluti í náttúrunni
- né, hvort hugir margra manna
- megna að breyta veðráttunni.
- Mb. Björgvin datt í slippnum
- Fjarskalega fór þetta illa með hann,
- flatur lenti Björgvin niður á sleðann.
- Reykdal sagði, og var það mjög til vona,
- voðalega slæmt að fá hann svona.
- Agalegur vindur vatt
- veika grenihæla.
- Báturinn hann Björgvin datt
- í brautina hans Sæla.
- Guðmundur á Háeyri
- um brennivínshækkun.
- Guðmundur á Háeyri
- Andskoti er Dauðinn dýr,
- drjúg er stjórnarbótin.
- Verðið fullar fjórar kýr,
- fæddar um aldamótin.
- Sögin góða
- Eins og brygði ofan í lög
- eik með harða kvisti,
- beitti enginn betri sög,
- bútaði jafnt og risti.