Ritverk Árna Árnasonar/Árni Árnason (símritari)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 13. ágúst 2013 kl. 11:43 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 13. ágúst 2013 kl. 11:43 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Ný síða: '''Árni Árnason''' yngri frá Grund, símritari, fæddist 19. mars 1901 og lést 13. október 1962.<br> Foreldrar hans voru Árni Árnason verkamaður...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Árni Árnason yngri frá Grund, símritari, fæddist 19. mars 1901 og lést 13. október 1962.
Foreldrar hans voru Árni Árnason verkamaður á Grund, f. 14. júlí 1870, d. 19. janúar 1924, og kona hans Jóhanna Lárusdóttir frá Búastöðum, f. 23. september 1868, d. 8. desember 1953.

Kona Árna yngri frá Grund var Katrín Árnadóttir, f. 12. október 1905, d. 8. maí 1981.
Barn Árna og Katrínar var:
1. Hilda Árnadóttir, f. 19. október 1926, d. 17. desember 2004, gift á Akureyri Herði prentara, f. 9. febrúar 1929, d. 9. september 2012, Svanbergs og fyrrverandi konu hans Aðalheiðar Jónsdóttur bónda í Einifelli.
2. Uppeldissonur Árna og Katrínar er Þórarinn Guðmundsson radíóvirki, f. 25. apríl 1929. Hann er sonur Guðmundar Árnasonar bróður Katrínar.

Úr fórum Árna Árnasonar símritara:
Bjargveiðimannatal.

Árni Árnason yngri er meðalmaður að hæð, ljóshærður og bláeygur, holdgrannur og smáger, léttur á velli og í lund, rjóður í andliti og ljós yfirlitum, snar í snúningum, lipur og líkamaléttur. Hann heldur sér vel í útliti nema hvað sjón er farin að daprast, svo að hann gengur með gleraugu að öllu jöfnu.
Hann hefir verið við veiðar síðan 1908 (frá 7 ára aldri) að mestu eða miklu leyti óslitið og verið í öllum úteyjunum nema Elliðaey. Hann þykir góður veiðimaður, þótt kraftamaður sé hann enginn. Hann hefir verið að veiðum í Suðurey, Álsey, Brandi, Bjarnarey og Heimakletti, velkunnugur veiðum á heimalandi og hvarvetna skilað sínum hlut. Hann hefir ávallt verið hlutgengur, veiðir daglega að sögn kunnugra, stilltur og gætinn og komið sér vel við félaga sína.
Hann þykir og afbragðs matreiðslumaður og afhaldinn af Álseyingum á því sviði.
Músikant er hann sjálflærður og hefir spilað mikið á fiðlu og harmoníku.
Hann var aðalhvatamaður að stofnun bjargveiðimannafélagsins og hefur verið formaður þess frá stofnun, ávallt endurkjörinn.
Hann hefur verið símritari síðan 1919 og er það enn, stundaði áður alls konar landvinnu.


Úr fórum Árna Árnasonar, efnisyfirlit

Önnur umfjöllun á Heimaslóð: Árni Árnason (símritari)


Heimildir