Elín Steinmóðsdóttir (Steinmóðshúsi)
Elín Steinmóðsdóttir vinnukona frá Steinmóðshúsi fæddist 1836.
Foreldrar hennar voru Steinmóður Vigfússon þurrabúðarmaður, f. 1775, d. 28. júlí 1846, og kona hans Elín Guðmundsdóttir húsfreyja, f. 27. ágúst 1796, d. 8. júlí 1876.
Elín var 8 ára í foreldrahúsum í Steinmóðsbæ 1845, með ekkjunni móður sinni þar 1850 og 1860 og enn 1870, ógift. Hún var ógift vinnukona á Kirkjubæ 1890, finnst ekki síðar á manntali.
I. Barnsfaðir Elínar var Jes Nicolai Thomsen verslunarstjóri í Godthaabsverslun, f. 7. nóvember 1840, d. 30. janúar 1919.
Barnið var Guðmundur Jesson, síðar verkamaður á Litlu-Grund, f. 13. nóvember 1867 í Nýborg, d. 19. apríl 1931.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Vestur-Skaftfellingar 1703-1966. Björn Magnússon. Leiftur 1970-1973.
- Manntöl.
- Íslendingabók.is.