Hallur Hróbjartsson (Búastöðum)
Hallur Hróbjartsson á Búastöðum, f. um 1727, var bóndi og formaður. Hann hlaut heiðurspening fyrir umbætur í jarðrækt, líklega tilraunir til kornræktar á síðari hluta 18. aldar ¹) og ²).
Hans er getið í formannavísum Magnúsar Magnússonar vertíðina 1765 ³).
Hann var bóndi á Búastöðum 1801 og bjó þar ásamt konu sinni Önnu Árnadóttur og dóttur þeirra Ragnhildi⁴).
Heimildir
- ¹) Saga Vestmannaeyja II./ Einokunarverzlunin
- ²) Saga Vestmannaeyja I./ VIII. Þjóðlífslýsingar, 5. hluti
- ³) Sögur og sagnir úr Vestmannaeyjum, Formannavísur og hásetaraðir
- ⁴) Manntal 1801