Forsíða

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 16. mars 2011 kl. 14:24 eftir Frosti (spjall | framlög) Útgáfa frá 16. mars 2011 kl. 14:24 eftir Frosti (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit
Mynd vikunnar
Grein vikunnar

Er þetta ekki í Bliki?

Málþing til heiðurs Þorsteini Þ. Víglundssyni laugardaginn 26. mars 2011.

Í mars 2011 eru 75 ár liðin frá því Þorsteinn Þórður Víglundsson hóf göngu Bliks,merkasta menningarrits úr Vestmannaeyjum. Af því tilefni mun Sögusetur 1627 og Bókasafn Vestmannaeyja standa fyrir málþingi til heiðurs Þorsteini.

Dagskráin verður í Einarsstofu, anddyri Safnahúss og hefst kl. 14 laugardaginn 26. mars og áætlað að henni ljúki um kl. 16:30.

Dagskráin verður auglýst síðar, en meðal efnis má nefna að vinir og samstarfsmenn minnast Þorsteins, kynning verður á Bliki á heimaslóð, myndasýning úr Bliki, fjallað um fyrirhugaðar breytingar á Byggðasafninu, upplestur o.fl.

Allir hjartanlega velkomnir.

Undirbúningsnefndin

Endilega skoðið Blik á Heimaslóð

Húsið Þingeyri við Skólaveg 37 er byggt árið 1921. Jón Jónsson byggði húsið og flutti hann ásamt Steinunni Sigurðardóttur konu sinni og syni, í húsið og bjuggu þau í því til ársins 1924, er Sigurjón Sigurðsson, fisksali kaupir það og flytur inn ásamt fjölskyldu sinni.

Lesa meira

Heimaslóð hefur nú 40.364 myndir og 21.608 greinar.